Atvinnuhúsnæði
Skrifstofur / íverurými
Við Dverghellu 10, Hafnarfirði, rís um þessar mundir er atvinnuhúsnæði og eru áætluð verklok síðla árs 2025. Teikningar gera ráð fyrir einni til tveimur einingum og verða þær hvort heldur til leigu eða sölu.
Dverghella 10 er stálgrindarhús á tveimur hæðum, alls 1889 fm, og möguleikar á útfærslu þess eru fjölmargir. Hönnunin gerir ráð fyrir tveimur aðskildum rýmum sem hægt er að kaupa eða leigja hvort um sig. Rýmin er einnig hægt að sameina og afhenda sem eina heild. Nýtingarmöguleikar eru óteljandi og mögulegt að klæðskerasníða húsnæðið að þörfum hvers og eins, bæði að utan og innan. Hönnun húsnæðisins er metnaðarfull, með það fyrir augum að hver fermeter nýtist sem best. Þar gæti vel komið til greina að hýsa heildsölu, skrifstofur, verslanir eða vörulager. Aðgengi er gott, lóðin afmörkuð og næg bílastæði til umráða. Staðsetning hússins er í Helluhverfi í Hafnarfirði, en þar hefur undanfarin ár risið myndarleg byggð verslunar- og atvinnuhúsnæða af ýmsu tagi.
Hér að neðan má sjá hugmyndir um nýtingu.
| BIL | - | HEILDARSTÆRÐ | EFRI HÆÐ | NEÐRI HÆÐ | - | VERÐ |
|---|---|---|---|---|---|---|
| A | 1 | 1472 ㎡ | 415 ㎡ | 1057 ㎡ | - | Væntanlegt |
| B | 1 | 417 ㎡ | 134 ㎡ | 283 ㎡ | - | Væntanlegt |
Byggingaraðili
Byggingaraðili hússins er Húsameistari ehf. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur víðtæka reynslu þegar kemur að byggingu stálgrindarhúsa. Á nýliðnu ári lauk fyrirtækið við eitt slíkt, 5.600 fermetra verslunar- og skrifstofuhúsnæði í Miðhrauni í Hafnarfirði. Yfirstandandi er bygging annarra atvinnuhúsnæða í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Selfossi. Þá hafa starfsmenn Húsameistara ehf. Einnig umfangsmikla reynslu af því að klæðskerasníða lausnir að þörfum ólíkra viðskiptavina. Þar má nefna Bónus í Miðhrauni, og Nettó, Hamborgarabúllu Tómasar og Hesju við Selhellu. Meðal annarra verkefna Húsameistara ehf. Eru nýjar BREEAM vottaðar höfuðstöðvar BYKO í Breiddinni og Meltingarsetrið á Höfða.
